Að kunna að biðjast afsökunar.

Ingibjörg og Geir Hilmar. Hvers vegna komið þið ekki fram fyrir alþjóð og biðjist afsökunar á því hversu hrikalega illa þið stóðu ykkur á vaktinni fyrir almenning í landinu. Þið komið fram á lokuðum samkundum í flokkum ykkar og biðjið afsökunar frammi fyrir vinum og vandmönnum í flokkum ykkar. Hvað með Jón og Gunnu sem búa í þjóðfélagi ykkar og hafa orðið fyrir barðinu á óstjórn ykkar í landsmálum þjóðarinnar skuldið þið þeim ekki afsökunar beiðni?
mbl.is Átti að gera skýrari kröfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hugsa upphátt.

Þetta er orðin svo löng greiðslustöðvun að það þar setja það í Hansahillurnar.
mbl.is Fallið frá ákæru á hendur Baugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsti flokkur gerið svo vel

Hafið þið tekið eftir því að þingmenn og frambjóðendur eru fólk sem er að leita sér að vinnu. Hugsjónir og stefnur eru sturtað niður við fyrsta tækifæri. Hvað hefur breyst frá síðustu viku þegar séra Karli var hafnað sem þingmannsefni SF. Ekkert. Séra Karli vantar bara vinnu. Það er svo einfalt er nú það.

Atvinnuleit er þetta kallað.


mbl.is Karl V. til liðs við Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mesta efni íslands?

Sagði við mig einn sem kann öll trixinn í boltanum að Guðlaugur Victor væri sá efnilegasti sem hefur komið fram í íslenskri knattspyrnu síðan að Lúðvíg Arne Einarsson skoraði fyrsta markið í leik KR gegn Fram á Íslandsmótinu árið 1912.


mbl.is Guðlaugur með Liverpool gegn Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin er spámaður í eigin föðurlandi.

Góð hugmynd hjá markaðssérfræðinginum. Þetta sýnir bara að enginn er spámaður í eigin föðurlandi. Ég þekki mann sem útskrifaðist sem Matreiðslumaður en vann alla sína ævi hjá Olis sem starfmaður á plani.

 


mbl.is Enginn mætti í blysförina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur kann trixinn í bransanum

Hægan hægan Össur þú ert eins og feitur fress. Þú ert alltaf tilbúin að hlaupa uppí fangið á þeim sem nennir að strjúka þér. Hvar varstu þú staddur kæri Össur í kjölfar hrunsins?? Þú varst á 1 farrými með Bjarna Ármans og REY liðinu í Dubai að ganga frá samningum um að koma orkunni í hendurnar á útrásarvíkingunum.

Ef einhver ráðherra á að axla ábyrgð og gang út úr stjórnmálum þá er það feiti fressin hann Össur Skarphéðinsson. Hans tími er liðinn.


mbl.is Bankahrunið hefur áhrif á öryggismál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knattspyrnulegur metnaður til staðar hjá báðum aðilum.

Vertu velkomin Baldur í KR. Við erum glaðir að hafa fengið þig til liðs við okkur. Það var líka gaman að heyra þig segja að þú hafir ákveðið að fara í KR vegna þess að þú hafir mikinn metnað sem leikmaður og KR getur komið til móts við þann metnað.
mbl.is Spilar með KR að öllu óbreyttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forystumaður sem þjóðin vill

Kæra Jóhanna.

Mikið er ég glaður að lesa að þú viljir skoða það að gefa kost á þér sem formaður SF.  Ég er ekki í nokkrum vafa að þú munir standa þig vel nú sem endranær. Sú hugsun er líka góð að þú munir verða áfram Forsætisráðherra það þýðir einungis það að Sjálfstæðisflokknum verður gefið frí næstu árin vonandi.

Þar á bæ þurfa menn og konur að fara í endurhæfingu ekki síst ef marka má orð Geirs H Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann talar um að fólkið þar á bæ hafi brugðist ekki stefnan. Sem eru í raun merkileg ummæli og sýna svo ekki verður umvillst að sá flokkur er í mikilli tilvistarkreppu.

Jóhanna þú ert sú kona sem við treystum bezt og ég vona að þú takir skrefið til fulls og verður leiðtogi okkar landsmanna á komandi árum, við þurfum öflugan og dugmikinn forystumann til að leiða okkur út úr '' fjálshyggju ruglinu '' frá tíð Sjálfstæðisflokksins. Þinn tími er komin.

 


mbl.is Jóhanna íhugar áskoranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

My woman.

Spegillinn á RUV er sá fjölmiðill sem hefur flogið hvað hæst undanfarið. Sérstaklega finnst mér áhugavert að heyra pistla  Sigrúnar Davíðsdóttur frá Lundúnum. Þar fer góður fréttamaður. Sigrún hefur verið að kanna undanfarna mánuði útrásarbólu bankanna erlendis og það er um það eitt að segja Sigrún Davíðsdóttir hefur farið hreinlega á kostum.

Í kvöld í Speglinum lét hún útrásavíkinganna líta út eins og þeir stæðu einungis á brókinni einni fata ef ekki berrassaða.Sigrún var í kvöld að fjalla um það hvernig ömurleg útlánastefna bankanna erlendis var með eindæmum. Sigrún svarar útrásavíkingunum fullum hálsi þegar þeir (útrásavíkingarnir) eru að réttlæta gerðir sínar. Sigrún hefur afhýðað þessa gæja þannig að þeir líta frekar illa út.

Sigrún Davíðsdóttir er minn uppáhalds fréttamaður sem ég læt aldrei framhjá mér fara. Hún er svölun reiði minni í garð misheppnaðar útrásavíkinga sem halda áfram að reyna að fegra gerðir sínar og um leið að ljúga að okkur. Hugsið ykkur að Sigrún fræddi okkur á því í kvöld að Kaupþing, KSF voru 17% af lánum bankans til Snekkju kaupa  það er u.m.þ.b 57 milljarðar! Vá hafið þið heyrt það betra. Þvílíkt rugl.

Sigrún haltu áfram á sömu braut þú ert einfaldlega bezt.

 

 


mbl.is Svör við efnahagsvandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tiltekt eftir frjálshyggju sukk Sjálfstæðisflokks.

Um leið og ég óska Ingibjörgu Sólrúnu skjóts bata þá tek ég undir orð Össurar um að Jóhanna Sig, er sá aðili sem getur tekið við formennsku í Samfylkingunni nú um stundir. Þjóðin þarfnast heiðarlegs og ábyrgs leiðtoga sem Jóhanna er.

Það þarf öfluga konu í það að taka til eftir frjálshyggju fyllerí Sjálfstæðismanna. Jóhanna er rétta manneskjan til þessa starfa.


mbl.is Össur biðlar til Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband