Vinstri Grænir vinna á kostnað Sjálfstæðisflokksins.

Vinstri Grænir eiga ekki í erfiðleikum að auka fylgi sitt þessa daganna á kostnað Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn er í sjálfsútrýmingar hættu. Hegðun og vitneskja um vinnubrögð þar á bæ undanfarna daga segja allt sem segja þarf.


mbl.is Ekki tveir turnar heldur þrír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geysir Green Energy

Er þetta ekki augljóst,Hannes Smárason útrásarvíkingur var á í útrásarherferð með Sjálfstæðismönnum í Borgarstjórn þegar greiðslan er framkvæmd í lok des.2006. Auðvita var auðvelt að múta Sjálfstæðisflokknum með þrjátíu milljónum króna.  Hannes stofnaði 6. janúar 2007 Geysir Green Energy, sem átti að mergsjúga Orkuveituna og það átti ekkert að greiða fyrir þann snúning. Sjálfstæðismenn eru með allt niður um sig korter í kosningar. Auðvita er taflmanninum fórnað sem er komin út af borðinu. Geir H Haarde.
mbl.is Styrkir endurgreiddir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vextir allt of háir

Þrátt fyrir lækkun stýrivaxta um 1,5% sem er í raun aðeins hænuskref í átt til betri lífskjara fyrir fólk og fyrirtæki. Lækkunarferlið hefur tekið allt of langa tíma. Það má gera ráð fyrir að mörg heimili og fyrirtæki munu ekki hafa það af í efnahagslegum skilning næstu mánuðina.

Vextir eru allt of háir heimilin hafa ekki lengur bolmagn til að lifa þessa vaxta vitleysu af það þurfa stjórnvöld að fara að skilja. Ofmat okkar á stjórnmálamönnum er alltof mikið, stjórnmálamenn eru ekki að gera neitt í málefnum heimila og fyrirtækja. Stór orð en sönn.

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn er komin með stjórnina á peningastefnu landsmanna hvort sem okkur líkar betur eða verr.


mbl.is Ekki tímabært að draga úr höftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grindjánar seigir

Það má segja með sann að Grindvíkingar eru duglegir í því að næla sér í góða leikmenn erlendis frá. Það er mikið happadrætti að fá góða leikmenn og leikmenn sem geta aðlagast íslenska boltanum. Oftar en ekki sýnd veiði en ekki gefin.
mbl.is Soumare skrifar undir í Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

BMW kynslóðin

Ekki ætla ég að setjast í dómarasæti í þessu tiltekna máli. En ég verð að viðurkenna það að þegar ég verð var við unga ökumenn á BMW eða öðrum ámóta ökutækjum fer um mig ónota tilfinning. Vorin eru oft tíminn þegar hraðakstur eykst á götum borgarinnar. Ég óska landsmönnum alls góðs í umferðinni í dag.
mbl.is Verður yfirheyrður seinna í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara sisona

" En ég er ekki í nokkrum vafa um að við munum vinna okkur út úr því" segir Valgerður og beinir orðum sínum til meðal Jónsins sem er að missa allt sitt þessa daganna. Valgerður rétti vinum sínum, Finni Ingólfs, Ólafi Ólafssyni, Hreiðari Má og Sigurði Einarssyni Búnaðarbankann sem seinna varð Kaupþingbanki, bara si sona á silfurfati hérna um árið.


mbl.is 22 ára þingferli Valgerðar lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út af með dómarann

Við getum öll verið sammála að þetta voru óvænt úrslit. Ég sá á kr.is að dómarinn var 12 maðurinn í liði Fylkis. Gat það nú verið. Ekki það að ég sé neitt voða svekktur út af þessu tapi, þá er það óþolandi að við hjá KR þurfum að vera berjast við dómarann líka. Jésús hvað maður er orðin þreyttur á þessu. Ég hélt að þetta væri farið að skána eftir 33 ára skandal sem gerði okkur titilausa þarna um árið.

Jæja þýðir ekkert að grenja þennan skandala (enda hver nennir að pæla í þessum fúla deildabikar sem enginn nennir að horfa á kannski nokkrir gaflarar). Við tökum bara dollurnar sem eftir eru í sumar á alvöru völlum og vonandi með alvöru dómurum.


mbl.is Fylkismenn lögðu KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland er auðugt.

Við íslenska þjóðin erum auðug að eiga svona flottan strák eins og Aron. Á þessum leiðinda krepputímum og þegar allt er vegið í krónum og aurum og hve miklu við höfum tapað á bönkunum þá er gott að ylja sér á tilhugsunin að þessi flotti strákur á eftir að skemmta okkur á handboltavellinum á komandi árum.

Og að byrja ferilinn hjá Kiel er bara alger snilld.


mbl.is Aron í aðgerð hjá Kiel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar KR ing í liðið.

Hvenær ætla íslenskir þjálfarar að fara að fatta það að við vinnum engan leik ef KR ingur er ekki í liðinu.
mbl.is Nokkrar breytingar á liði Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurleg heit Sjálfstæðismanna hefur náð nýjum hæðum.

Það sem er sorglegast við ræðu Davíðs á flokksþinginu í dag er það að við almenningur höfum búið við stjórnarsetu Davíðs og Sjálfstæðisflokksins í áratugi. Takið eftir gremjunni i Davíð. Hann og um leið flokksþing Sjálfstæðismanna náði nýjum hæðum í dag í ömurleg heitum gangvart öllu því fólki sem hefur búið við stjórn þessara manns undanfarin ár.

 Nýi Seðlabankastjórinn var fengin til þess að taka til eftir Davíð og félaga ekki vanþörf á. Sjálfstæðismenn hafa siglt öllu í strand og óeining innan flokksins er augljós s.b.r skítkast Davíðs út í Vilhjálm Egilsson.

Sjálfstæðismenn hljóta að spyrja sig þeirrar spurningar hvort það hafi verið rétt að gefa Davíð orðið í dag. Hann henti sprengju sundrungar inná flokksþingið og var sundurlyndið nægilegt fyrir hjá Sjálfstæðismönnum.


mbl.is Vilhjálmur: Ómakleg ummæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband