Almenningur fær ekki að heyra sannleikann

Það er ekki stjórnmálalegur vilji fyrir hendi að sannleikurinn komi í ljós. Það bendir allt til þess að skýrslan verði sagan endalausa. Það er allt gert til þess að auka á gremju almennings.
mbl.is Skýrslan frestast enn lengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég verð að fá að leiðrétta Guðmund.

Ég er búin að fylgjast með handbolta hjá KR í 40 ár og ég man ekki eftir að við KR ingar höfum fengið á okkur  3 mörk á 50 sek. Var þetta ekki í leik á móti Val Guðmundur ? Einhvern vegin held ég það og þá í Laugardalshöllinni fyrir nokkrum árum. Ég er tilbúin að fyrirgefa þér þetta misminni þitt Guðmundur minn. Áfram Ísland.
mbl.is Guðmundur: Man eftir leik þar sem við skoruðum 3 mörk á 50 sek.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við gætum spilað markamannslausir...

Mér sýnist vesturbæjarstórveldið geta spilað markmannslausir þetta tímabilið og ástæðuna tel ég vera þá að við KR ingar erum yfirburðalið á Íslandi í fótbolta. Sem sagt þurfum ekki markmann.
mbl.is Þórður lánaður til KR frá Fjölni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki mikið álit.

Það er greinilegt að nýjir eigendur West Ham  hafa ekki mikið álit á þeim félögum Björgólfi og Eggert Magnússyni. Ég sem gamall stuðningsmaður Hamranna fagna því hinsvegar að félagið hafi fengið nýja eigendur sem eru tilbúnir að taka á málunum á Upton Park. Það þarf að hefja félagið aftur vegs og virðingar á Englandi.


mbl.is Zola heldur starfinu og Sullivan vill flytja West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starfslokasamningur í nánd?

Þarf ekki að fara að huga að því að forsætisráðherra láti af störfum. Hún er í forsvari fyrir stjórn sem hefur ekkert getað gert í málunum. Söngur stjórnarinnar hefur verið þessi " ef ekki verður klárað að ganga frá icesav þá mun.....  allt hrynja og Bretar og Hollendingar hætta að tala við okkur og allt mun fara til fjandans".

Þá stígur fram á sviðið Ólafur Ragnar guðfaðir stjórnarinnar og hafnar ömurlegum icesave samningi og rekur stjórnvöld með lögin óundirrituð heim í hérað. Össur segist vera hættur að bera töskurnar fyrir Ólaf og fer í fýlu ( á meðan er Ólafur í góðum gír og tekur á móti flottum verðlaunum á Indlandi) .

Skallagrímur og Jóhanna boða síðan stjórnarandstöðuna á fund og sá fundur var í dag og eftir fundinn er bara gefin út yfirlýsing um að möguleiki sé að koma Bretum og Hollendingum aftur að samningaborðinu. Ég held að ég verði bara ekki eldri. Þvílík rusl stjórn. Ætli Svavar Gestsson verði með í ráðum í þriðja sinn?


mbl.is Forsætisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umboðsmaður Guðs.

Það er spurning hvort þessi ágæti umboðsmaður Guðs sé ekki bara komin að út fyrir efnið? Honum væri það nær að biðja fyrir þjóð sem hefur lent í miklum hörmungum.
mbl.is „Haíti-búar sömdu við djöfulinn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló halló eruð þið að hlusta......

Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J Sigfússon?????

Góð hugmynd

Lilja Mósesdóttir er heiðarlegur þingmaður. Hún kom inná þing í vor og hefur átt fína spretti á þingi. Það er engin launung að Lilja hefur átt undir högg að sækja í þingflokki VG. Hún orðar það svo vel í þessu viðtali og sýnir í raun hvað hún er  niðurnjörvuð sem þingmaður VG, í viðtalinu segir  hún sagði orðrétt " Ég sem borgari vil þjóðaratkvæðagreiðslu, en sem þingmaður VG tel ég að það gæti verið betra að fara samningaleiðina", Þetta eru í raun þessi flokkshjólför sem alltaf er verið að tala um. Hugmynd Lilju um það að fá Joschka Fisher er frábær hugmynd sem gefur okkur von um að hægt sé að hugsa útfyrir kassann og vænta einhvers árangurs.
mbl.is Vill þýskan sáttasemjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forangsröðuninn er góð hjá þér Össur.

Það er nú gott að heyra. Þannig að þið stjórnvöld haldið  bara áfram ykkar aðal baráttumáli að koma Íslandi inní ESB. Heimili landsins mega því áfram bíða eftir því að stjórnvöld hjálpi þeim  og fari að sinna  þeim eins og sést í Morgunblaðinu í dag, þar sem 150 heimili eru boðin upp hjá Sýslumönnum víða um land. 
mbl.is ESB og Icesave aðskilin mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ertu hissa Jóhanna....

Hvað þýðir Icesave fyrir hinn venjulega Íslending ? Icesave kostar það að fjögurra manna fjölskylda þarf að borga 8,8 milljónir fyrir glórulaust stórmennsku brjálæði Björgólfsfeðga. Þurfum við að velkjast í vafa um að þjóðin neitar þessum kaleik. 
mbl.is Sátt ekki í sjónmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1054

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband