Færsluflokkur: Bílar og akstur

Össur kann trixinn í bransanum

Hægan hægan Össur þú ert eins og feitur fress. Þú ert alltaf tilbúin að hlaupa uppí fangið á þeim sem nennir að strjúka þér. Hvar varstu þú staddur kæri Össur í kjölfar hrunsins?? Þú varst á 1 farrými með Bjarna Ármans og REY liðinu í Dubai að ganga frá samningum um að koma orkunni í hendurnar á útrásarvíkingunum.

Ef einhver ráðherra á að axla ábyrgð og gang út úr stjórnmálum þá er það feiti fressin hann Össur Skarphéðinsson. Hans tími er liðinn.


mbl.is Bankahrunið hefur áhrif á öryggismál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Knattspyrnulegur metnaður til staðar hjá báðum aðilum.

Vertu velkomin Baldur í KR. Við erum glaðir að hafa fengið þig til liðs við okkur. Það var líka gaman að heyra þig segja að þú hafir ákveðið að fara í KR vegna þess að þú hafir mikinn metnað sem leikmaður og KR getur komið til móts við þann metnað.
mbl.is Spilar með KR að öllu óbreyttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forystumaður sem þjóðin vill

Kæra Jóhanna.

Mikið er ég glaður að lesa að þú viljir skoða það að gefa kost á þér sem formaður SF.  Ég er ekki í nokkrum vafa að þú munir standa þig vel nú sem endranær. Sú hugsun er líka góð að þú munir verða áfram Forsætisráðherra það þýðir einungis það að Sjálfstæðisflokknum verður gefið frí næstu árin vonandi.

Þar á bæ þurfa menn og konur að fara í endurhæfingu ekki síst ef marka má orð Geirs H Haarde formanns Sjálfstæðisflokksins þar sem hann talar um að fólkið þar á bæ hafi brugðist ekki stefnan. Sem eru í raun merkileg ummæli og sýna svo ekki verður umvillst að sá flokkur er í mikilli tilvistarkreppu.

Jóhanna þú ert sú kona sem við treystum bezt og ég vona að þú takir skrefið til fulls og verður leiðtogi okkar landsmanna á komandi árum, við þurfum öflugan og dugmikinn forystumann til að leiða okkur út úr '' fjálshyggju ruglinu '' frá tíð Sjálfstæðisflokksins. Þinn tími er komin.

 


mbl.is Jóhanna íhugar áskoranir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

My woman.

Spegillinn á RUV er sá fjölmiðill sem hefur flogið hvað hæst undanfarið. Sérstaklega finnst mér áhugavert að heyra pistla  Sigrúnar Davíðsdóttur frá Lundúnum. Þar fer góður fréttamaður. Sigrún hefur verið að kanna undanfarna mánuði útrásarbólu bankanna erlendis og það er um það eitt að segja Sigrún Davíðsdóttir hefur farið hreinlega á kostum.

Í kvöld í Speglinum lét hún útrásavíkinganna líta út eins og þeir stæðu einungis á brókinni einni fata ef ekki berrassaða.Sigrún var í kvöld að fjalla um það hvernig ömurleg útlánastefna bankanna erlendis var með eindæmum. Sigrún svarar útrásavíkingunum fullum hálsi þegar þeir (útrásavíkingarnir) eru að réttlæta gerðir sínar. Sigrún hefur afhýðað þessa gæja þannig að þeir líta frekar illa út.

Sigrún Davíðsdóttir er minn uppáhalds fréttamaður sem ég læt aldrei framhjá mér fara. Hún er svölun reiði minni í garð misheppnaðar útrásavíkinga sem halda áfram að reyna að fegra gerðir sínar og um leið að ljúga að okkur. Hugsið ykkur að Sigrún fræddi okkur á því í kvöld að Kaupþing, KSF voru 17% af lánum bankans til Snekkju kaupa  það er u.m.þ.b 57 milljarðar! Vá hafið þið heyrt það betra. Þvílíkt rugl.

Sigrún haltu áfram á sömu braut þú ert einfaldlega bezt.

 

 


mbl.is Svör við efnahagsvandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tiltekt eftir frjálshyggju sukk Sjálfstæðisflokks.

Um leið og ég óska Ingibjörgu Sólrúnu skjóts bata þá tek ég undir orð Össurar um að Jóhanna Sig, er sá aðili sem getur tekið við formennsku í Samfylkingunni nú um stundir. Þjóðin þarfnast heiðarlegs og ábyrgs leiðtoga sem Jóhanna er.

Það þarf öfluga konu í það að taka til eftir frjálshyggju fyllerí Sjálfstæðismanna. Jóhanna er rétta manneskjan til þessa starfa.


mbl.is Össur biðlar til Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur verður af aurum api.

Samkvæmt lánabókinni námu lán til Ólafs Ólafssonar og tengdra félaga samtals 78,9 milljörðum króna. Þar af er 4,9 milljarða lán til Ólafs sjálfs.

 

Í dag eru kröfur vegna lánanna ýmist hjá skilanefnd Kaupþings eða Nýja Kaupþingi. Óvíst er hversu mikið útlánatap verður vegna lánveitinganna.

Ólafur og frú eru svo annað slagið að koma fram á sjónarsvið íslensk raunveruleika með því að klæða sig í föt Hróa Hattar. Sveifla fram seðlum til þess að fegra ásjónu sína sem hefur beðið alvarlegt hnekki. Það hafa margar ár runnið til sjávar frá því að Ólafur var einfaldur kaupfélagsstjóra sonur úr Borgarnesi. Græðgin hefur gleypt Ólaf og frú með húð og hári.


mbl.is 500 milljarðar til eigenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mömmuklúbbur sagði kallinn um ÍA

Hvað sögðu þeir á skaganum í fyrra þegar þeir losuðu sig við Gauja. '' hann er búin sem þjálfari heyrðist sagt hjá gulum og glöðum''

 Kallinn er eins og kötturinn með 9 líf og rúmlega það. Og er hættur að þjálfa mömmu klúbb.


mbl.is Guðjón útnefndur knattspyrnustjóri mánaðarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prófkjör nei aldeilis ekki

Allt má nú kalla prófkjör. Ég hitti einmanna vonarpening með auglýsingar um eigið ágæti í Kolaportinu um helgina. Hann var lágstemmdur og tjáði mér að (sem ég vissi allt um) prófkjörið sem á að halda hjá Samfylkingunni sé niðurraðað að hálfu forystunnar. Þannig að sá ágæti maður hafði ekki mikla trú á því að komast að í 4ja sætið.

Já og forystan er hún ekki komin af fótum fram? Það þurft búsáhaldabyltingu til að vekja forystu Samfylkingarinnar í janúar lok. Forystan var að hugsa um það eitt að halda í stólanna. Gaf ekkert út á stöðu heimilanna og fyrirtækjanna.

Segir það ekki allt sem segja þarf að Jón Baldvin er orðin sá eini með réttu ráði í þessum vesæla flokki.


mbl.is Össur í 3. sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá fyrsti hjá okkur KR ingum.

Jæja þá er fyrsti bikarinn komin í hús hjá okkur KR ingum á árinu 2009. Mér sýnist stefna í sigur sumar hjá KR.


mbl.is KR-ingar Reykjavíkurmeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndir komnir að leiðarlokum

Hættu að telja þetta er ég ! gæti Kristinn sagt. Spurning hvert hann fari næst.
mbl.is Kristinn hættur í þingflokki frjálslyndra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband