Höfðinu stungið í sandinn.

Það er ekkert nema gott um það að segja að útlendingar vilji setjast að á íslandi. Mín skoðun er sú að það er vöntun á fólki í ákveðnar starfsgreinar á íslandi, þetta eru starfsgreinar með lægstu laun og oft á tíðum erfiðisvinna og ekki alltaf svo þrifarleg. Ég er m.a. að tala um fiskiðnað og fleiri skyld störf.

Íslendingar eru fyrir löngu síðan hættir að nenna vilja vinna í fiski. Þess vegna er eftirspurn eftir erlendum vinnufúsum höndum í þá grein. Þið þurfið ekki nema fara vestur á firði og sjá með eigin augum hvernig staðan er þar, það að segja þar sem útgerð er en stunduð. 

Mér finnst hann hinsvegar ansi ódýr oft þessi samanburður á íslandi og austur evrópu og ekki minnst þegar talað er um Pólland. Þeir sem fara til Póllands sjá að þar er mjög svo stéttskipt þjóðfélag þar sem margir hafa það mjög gott og aðrir sem hafa lakari kjör. Það er munur á Varsjá og fátækum bæjum sem eru staðsettir í suð austur Póllandi t.d. Þannig að kjör þar eru mjög svo misjöfn. 

Það sem austur evrópu lönd mörg hver hafa fram yfir ísland er hinsvegar að þau eru komin í örugga höfn með gjaldeyrismál. Pólverjum hefur hinsvegar ekki gengið sem best að taka til í peningamálum og eru því ekki komnir ennþá með evru. 

Við hinsvegar erum hinsvegar að festa í langvarandi gjaldeyrishöftum með þeim afleiðingum að eðlileg viðskipti eiga sér ekki stað. 

Íslenska krónan er orðin mun verðminni en sloty og rubla og aðrir austur evrópskar mynntir - hún er í raun verðlaus. Ekki get ég notað íslensku krónuna hérna í Noregi þar sem ég bý og hef ekki getað í mörg ár. 


mbl.is Ísland auðugra en heimalandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilega ekki lesið twitter færslu Ingólfs.

Mikið er ég glaður að fá þennan unga og efnilega mann í KR... Það er líka heppni að hann las ekki twitter færslu Ingólfs Sigurðssonar.

Það er alltaf pláss fyrir unga og efnilega menn í KR , ég veit allt um það enda búin að vera stuðningsmaður KR í mörg ár. 


mbl.is Frá Heerenveen til KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegt mál.

Sú spurning vaknar hjá mér við lestur þessara greinar er sú hvort Norræna Velferðarstjórnin sé hreinlega ekki á villigötum ?

Þar sem ég er búsettur erlendis og fylgist með ástandinu heima fyrir í gegnum fjölmiðla þá get ég ekki orða bundist. Það virðist vera orðin sátt um það í samfélaginu á íslandi að fólk þurfi að betla sér til matar. Það gefur augaleið að stjórnvöld eru komin langt af leið í því að skapa jöfnuð og réttlæti og ekki sé nú minnst á það að hjálpa þeim sem minna mega sín.

Guðmundur Magnússon, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands á hrós skilið að koma fram í fjölmiðlum og segja okkur hinum sannleikann. Krafan um kosningar strax á rétt á sér og því fyrr sem við getum stokkað spilin og gefið uppá nýtt - þá er von handa þeim sem minna mega sín. 

Því sem er lýst að framan í fréttinni er í raun stór áfellisdómur yfir úræðalitlum stjórnvöldum sem eru í óða önn að bjarga öllum öðrum en þeim sem bjarga þarf. Mér sýnist aðalmál stjórnavalda hafi verið að reyna bjarga fjármagnseigendum og bönkum þessa lands. 


mbl.is Hvorki efni á mat né bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem ekki má segja.

Eitt er þessari ríkisstjórn sem nú situr við stjórnvöldin mikið í mun. Það er alls ekki að tala um brottflutta íslendinga sem hafa yfirgefið eyjuna til þess eins að hafa atvinnu. Það hentar ekki hinni svokölluðu " endur reisn " að fjalla um þau mál.

Þess vegna eru allar opinberar tölur um atvinnuleysi algerlega óraunhæfara. Ég bý hérna í Bergen og hef orðið var við mikinn fjölda landa minna sem eru í óðaönn að koma sér fyrir. NAV hið norska talar um að 10 % af íslensku þjóðinni hafi flutt erlendis eftir hrun og þar af hafa 90 % af þessum 10 % flutt hingað til Noregs.

 Það er of snemmt að fara að tala um hversu margir munu koma aftur til baka ekki síst fyrir þær sakir að eins og staðan er heima á íslandi þá er ekki að neinu að hverfa fyrir brottflutta íslendinga.

Mín skoðun er hinsvegar sú að það muni gerast núna sem og gerðist seint á sjötta áratugnum þegar margir fluttu til Svíþjóðar að fjöldi fólks mun ekki koma aftur heim heldur aðlagst nýjum heimkynnum. 


mbl.is Hætt við að færri komi aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skráð atvinnuleysi gefur ekki rétta mynd.

Það hefur aldrei hentað endurreisninni að segja satt í sambandi við atvinnuleysistölur á íslandi. Hvað ætli við séum orðin mörg þúsund fólkið sem hefur farið erlendis til starfa? Ég er búsettur í Noregi og verð var við fjöldann allan af íslendingum koma hingað til starfa. Það mætti örugglega tvöfalda þessa atvinnuleysistölur með því að taka inní myndina brottflutta íslendinga frá hruninu.

Stjórnvöld hafa hinsvegar eins og Lilja Mósesdóttir orðaði það ekki viljað talað um brottflutta íslendinga. Sú staðreynd gefur ekki nægilega góða mynd af endurreisn íslands í umsjón Norrænu velferðarstjórnarinnar. 


mbl.is Atvinnuleysi áfram 8,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgjøfin berst til evropu.

Thad var ømurlegt ad heyra i frettum NRK herna i Noregi , thar sem haft var eftir Johønnu Sigurdardottur. Thad matti heyra gremjuna og uppgjøfina i Johønnu, samt ætlar Johanna og co ad halda afram eins og ekkert hafi gerst.

 Johanna skilabod fra Noregi til thin. Timi thinn er kominn og farinn.


mbl.is Afgerandi nei við Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sýna sjálfstæðan vilja.

Það eina sem Lilja og Álfheiður þurfa að muna eftir sem nýir formenn nefnda á vegum VG, það er að hafa ekki sjálfstæðan vilja , fara eftir flokkslínunni  í einu og öllu, rétt eins og í gamla Sovét.
mbl.is Álfheiður og Lilja verða formenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem ekki drepur hann herðir hann ....

Björgvin Gústafsson hefur sýnt það og sannað að við íslendingar eigum markmann á heimsmælikvarða. Strákurinn á eftir að að sanna það en frekar þegar hann gengur til liðs við Magdeburg í Þýskalandi.  Bestu bata kveðjur frá Bergen í Noregi til þín Björgvin Gústafsson.

 


mbl.is Björgvin Páll er úr leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna ! þinn tími er kominn og farinn.

Þessi kona sem gegnir æðsta embætti þjóðarinnar hefur fengið ofgreidd laun og þykist ekki hafa vitað af því. Er ekki þinn tíminn búinn Jóhanna Sigurðardóttir ? Kannski komin tími til að hleypa nýju fólki að stjórn landsins.
mbl.is Jóhanna biður um launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælismatur ?

Mér finnst við lestur á þessari frétt að hún sé full af fordómum. Hvað er orðið langt síðan að hætt var að tala um meðferðarheimili sem hæli ? Það mætti halda af þessari frétta að hún hafi verð skrifuð um miðja síðustu öld. Sjúkrastöðin Vogur ætti þá að heita samkvæmt þessari frétt Sjúkrahælið Vogur. Ekki satt ?
mbl.is Dæmdur í áfengismeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 841

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband