Nei Jóhanna

Eignir Kaupþings duga ekki fyrir skuldunum. Jóhanna þú gleymir að verðmeta orðspor heillar þjóða sem var dregin niður í svaðið af fjárglæframönnum sem voru í boði stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka sem en eru að fá fólk í landinu til liðs við sig.


mbl.is Eignir Kaupþings duga fyrir Edge
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru eigendur af Jöklabréfunum?

Það kæmi mér ekki á óvart að eigendur hinna svokölluðu Jöklabréfa væru samlandar okkar íslendingar. Mig grunar það að það muni koma fram mjög fljótlega.

Steingrímur J fjármálaráðherra ætti að kanna það og upplýsa okkur um það hverjir séu eigendur Jöklabréfanna.


mbl.is Lánið væntanlegt eftir fund AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varúð ! Kosningarloforð

Ég horfði á Kosningasjónvarp frá Akureyri í gærkveldi. Kristján Möller ráðherra tók til máls og tjáði landslýð það að kreppunni væri að ljúka. Við værum svo öflug þjóð að kreppa að þessari stærð hefði ekki áhrif á ísland til lengri tíma. Svo mörg voru þau orð.

Samkvæmt þessari frétt er um allt annað að ræða. Auðvita væri gott ef Kristján væri sannspár, en það er alger óþarfi að vera gylla hlutina og segja fólki ósatt eins og Kristján Möller gerði í gærkvöldi. Þetta var bara kosningaloforð eða kosningaorðagjálfur sem ráðherra bar á borð almennings í gærkvöldi.


mbl.is Svört spá frá IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðmenn lime?

Ég bjó með Norðmönnum í nokkur ár og fannst þeir vera frekar lime. Þarf að endurskoða þetta hjá mér.
mbl.is Stunduðu kynlíf á ofsahraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjáls eða ekki frjáls

Fyrrum auðmenn íslands sýna mér það að það er hægt að lifa fyrir utan fangelsismúra og vera ekki frjáls. Sú fegurð sem býr í orðinu og merkingunni að vera frjáls á greinilega ekki við alla.

Nelson Mandela var spurður af því eftir 25 ára fangelsisvist á Robben eyju af Breskri blaðakonu " hvort hann væri ekki reiður Suður Afrískum yfirvöldum að hafa fangelsað hann í 25 ár fyrir aðskilnaðarstefnu ?" svar Mandela var eftirfarandi. " Ef ég væri reiður í dag út í stjórnvöld væri ég en í fangelsi".


mbl.is Auðjöfrar landsins sjást ekki á götum Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland

Ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir!
Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?
Allt er í heiminum hverfult, og stund þíns fegursta frama
lýsir, sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld.
Landið var fagurt og frítt, og fannhvítir jöklanna tindar,
himininn heiður og blár, hafið var skínandi bjart.


Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu,
austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit.
Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti;
ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt.
Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð.
Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði.
Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll.
Þá riðu hetjur um héröð, og skrautbúin skip fyrir landi
flutu með fríðasta lið, færandi varninginnn heim.


Það er svo bágt að standa' í stað, og mönnunum munar
annaðhvurt aftur á bak ellegar nokkuð á leið.
Hvað er þá orðið okkart starf í sex hundruð sumur?
Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg?
Landið er fagurt og frítt, og fannhvítir jöklanna tindar,
himininn heiður og blár, hafið er skínandi bjart.
En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur
ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut.


Nú er hún Snorrabúð stekkur, og lyngið á lögbergi helga
blánar af berjum hvurt ár, börnum og hröfnum að leik.
Ó þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir!
Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá!


mbl.is Tapaði öllu á íslenskum bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Coke í boði

Það er fínt að allt sé komið fram í málinu. Þá getur kosningabaráttan haldið áfram hjá Sjálfstæðismönnum. Fáum okkur bara kalda kók og málið er dautt.
mbl.is Allt komið fram sem máli skiptir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórt borð óskast

Geir Hilmar hefur stigið fram á sviðið og viðurkennt að hafa samþykkt styrkina frá FL group og LÍ. Hugrakkur Geir og hreinskilinn kunna einhverjir að segja. Er ekki samt Geir að taka skellinn fyrir einhvern eða einhverja aðra? Það mun koma í ljós eftir þennan fund.

Tenging á milli stórfyrirtækja og Sjálfstæðisflokksins  er ótrúleg þegar sagan er skoðuð. LÍ hefur verið vinnustaður Kjartans Gunnarssonar til langs tíma auk þess sem hann var framkvst. flokksins á sama tíma. Inga Jóna eiginkona Geirs var í stjórn FL group um árið og hætti með miklum látum eftir að henni hafi verið misboðið framferði FL group manna. Inga Jóna hafði samt ekki fyrir því að tjá alþjóð um það hvað það hafi verið sem gerði það að verkum að hún kvaddi FL group með þessum látum.

Sjálfstæðismönnum er vorkunn korter í kosningar. Það er komin tími til að fá allt uppá borðið eins og Þorgerður Katrín sagði í ræðu sinni á síðasta landsfundi flokksins fyrir nokkrum dögum. Ég held samt að " borðið" verði að vera mjög stórt.


mbl.is Þingflokkurinn á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pilsnerflokkur.

Það hlýtur að vera nýjum formanni Framsóknarflokksins umhugsunar efni að fylgi flokksins í skoðunarkönnunum er ekki meira en raun ber vitni. Vandamálið sem flokkurinn glímir við í dag er arfleiðinn. Það eru svo margir sem geta bara ekki hugsað sér að kjósa flokkinn vegna frammistöðu fyrri ára og afreka.

Framsóknarflokkurinn er svo nátengdur spillingu sem hefur viðgengist í íslenskum stjórnmálum í fjölda ára. Spilling eins og einkavæðing bankanna er nátengd Framsóknarflokknum, snúningar Binga og Alfreðs í Borgarstjórn er eitthvað sem fólk hefur ekki fyrirgefið Framsóknarmönnum.

Jafnvel þó svo að nýjir sópar  séu dregnir fram í dagsljósið og að þeir eigi að sópa gólf framtíðarinnar betur en þeir fyrri dugir ekki til. Framsóknarflokkurinn er dæmdur til að verða ámóta sterkur og pilsner.


mbl.is Ekki mistök að verja stjórnina falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband