26.1.2009 | 12:12
visir.is
![]() |
Rafmögnuð stemmning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.1.2009 | 11:39
Á ögurstundu
Afsögn Viðskiptaráðherra er einungis til þess fallin að bjarga hans eigin skinni. Björgvin G vissi vel að ef hann ekki segði af sér sem ráðherra og viki óhæfri stjórn og óhæfum framkvæmdarstjóra FME væri stjórnmálaferill hans á enda runninn.
Betra seint en aldrei kunna aðrir að segja.
![]() |
„Þetta eru dæmalausir dagar“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2009 | 15:56
Gefa þarf tækifæri
Mikið ertu veruleikafyrtur Hörður. Það þarf tíma fyrir flokkana og ný framboð að koma skilaboðum til fólks í landinu. Gefðu okkur kjósendum tækifæri til þess að átta okkur á nýju og breyttu landslagi þjóðfélagi voru.
Slakaðu á Hörður og blástu af laugardagfundi þína.
![]() |
Hænuskref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2009 | 15:08
Bata kveðja
Með brostin hug og brotið hjarta,
blítt mér tárið rann,
fjöllin háu ennþá skarta
Ísland þér ég ann.
ph.
![]() |
Geir: Kosið í maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2009 | 11:26
Bræla á miðunum
Það má kannski segja að það sé bræla á sviði heimsviðskipta. Kaptílaisminn gerði ekki ráð fyrir að þeir vellauðugu ættu möguleika að leita vars með fé sitt eyja á borð við Cayman Island. Þeir bíða þar eftir því að óveðrið gangi yfir.
Á meðan reyna þjóðir heims að dæla fé inní gjaldþrota bankakerfi sitt og þar situr fólk við stjórnvölin sem eru eins og Geir H orðaði það '' haldin ákvörðunar fælni'' og þorir ekki að gera neitt.
Almenningur lepur dauðann úr skel og missir störf sín í umvörpum. Á meðan synda hákarlarnir í vari við eyjar Karabískahafsins og bíða eftir að veðrið sloti og þá verða þeir tilbúnir að koma fram á sjónarsviðið aftur til þess að ná nýjum snúningum á verðlausum félögum og fyrirtækjum.
Nýfrjálshyggja Hólmsteins og félaga gerði aldrei ráð fyrir þessum ósköpum og þeir sitja en og klóra sér í hausnum og reyna að fatta hvað fór úrskeiðis. Þeim er vorkunn.
![]() |
Samdráttur í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2009 | 10:36
Sjálhverf Þorgerður Katrín
Hroki getur afvegaleitt fólk á ýmsum stigum. Þorgerður Katrín er stjórnmálamaður sem er full af Hroka. Hún sté í pontu á Alþingi í gær og talaði um að Alþingismenn væru sjálfhverfir að vera að hugsa um kosninga í miðjum björgunar störfum ríkisstjórnarinnar. Hún áttar sig ekki á því blessunin að það er þjóð sem hrópar og kallar á kosningar.
Þorgerður Katrín og aðrir Alþingsmenn þurfa ekki að ganga með þá glýju í augunum að almenningur sé að hrópa og kalla eftir frekari störfum þeirra. Væri nær fyrir Þorgerði Katrínu að koma sér niður úr turninum og fara að hlusta á þjóð sína. Láta af þessum hroka sem hefur einkennt hennar stjórnmálaferill undanfarið.
![]() |
Allt kemur til greina" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 13:37
Hef heyrt þetta áður
![]() |
Enginn af nýju bönkunum að falla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2009 | 10:04
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
Sú staða sem íslensk þjóð glímir við núna er í raun fáránleg. Heil þjóð er látin biða eftir niðurstöðu af landsfundi Sjálfstæðismanna. Á meðan brenna eldar víða í samfélaginu. Eldar sem ekki verður auðvelt að slökkva aftur.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er fyrirsjáanlegur. Klappað fyrir Geir, klappað fyrir Davíð, klappað fyrir Kjartani Gunnarssyni, klappað fyrir hugmyndafræðingunum Hannesi Hólmstein. Allir rétta upp hendur tillögu um að halda áfram á sömu braut. Um kvöldið er dottið í það.
Mæta þunnir á Alþingi eftir velheppnaða helgi og fara að ræða um það hvort ekki eigi að selja áfengi í Bónus.
![]() |
Óslóartréð borið á bálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.1.2009 | 21:16
Kosningar strax
Þegar ráðherra kemur fram með slíkum hroka er erfitt að taka mark á honum. Eina ljóstýran sem gæti fundist í stöðu mála á Íslandi er það að Samfylkingin sjá sóma sinn í því að slíta stjórnarsamstarfinu strax.
Mótmælin eiga bara eftir að aukast næstu daga og langlundargeð þjóðarinnar er búið. Þorgerður sem er ekki með allt á hreinu í sambandi við þann skít sem nú flýtur uppúr Kaupþingbanka, gerir eins og allir aðrir valdhafar, reynir að halda í völd.
Því miður tími stundarglasins er út runninn.
![]() |
Mótmæli mega ekki snúast upp í andhverfu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.1.2009 | 19:34
Ríkisstjórnin er......
![]() |
Þjóðin var í Alþingisgarðinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 19:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Páll Höskuldsson
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar