Við eigum að krefjast þess.....

að umsókn um aðild að ESB verði dregin strax til baka. Ísland á ekkert erindi inní ESB. Eins og sjá má er urmull af alskyns öfgaöflum á Evrópuþinginu.
mbl.is Ísland vinni heimavinnuna sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tími Steingríms J. er liðinn?

Þrátt fyrir miklar yfirlýsingar í gengum allt IceSave málið hefur ekkert gengið hjá Steingrími J. Hann hefur verðið með samningamenn eins og Svavar Gestsson og Indriða Þorláksson sem engu hafa skilað. Bresk og Hollensk stjórnvöld vilja hafa stjórnarandstæðuna með í ráðum, þeir treysta ekki stjórninni og Steingrími J.

VG er klofin í herðar niður í IceSave málinu þannig að það má gera ráð fyrir því að ekki náist sátt þar í bráð.

Tími Steingríms J. er að enda komin í stjórnmálum. Steingrímur J. á að axla þá pólitísku ábyrgð að hafa klúðrað IceSave samningunum með því að klára þá ekki og tefja þar með alla uppbyggingu eftir hrunið á Íslandi. Steingrímur J. á að segja af sér strax eftir helgina.


mbl.is Tilbúnir til frekari viðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning dagsins.

Ætla þessi skötuhjú að leiða viðræður um lausn á icesave eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna?

 


mbl.is Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert nýtt fyrir þjóðina að vera kúgaða

Aldrei hef ég lifað jafn undarlegan tíma í Íslensku samfélagi og nú um stundir. Ég í fyrsta skipti finn fyrir örvæntinu og finna að fólkið í landinu er vonlítið og biturt út í stjórnmálamennina og stjórnsýsluna.

Það að fulltrúar flokks sem átti ekki hvað síst þátt í því að koma landinu í þá erfiðleika sem hvarvetna blasa við stígi í pontu og bendi lýðnum á það að láta ekki kúga sig eins og formaður Sjálfstæðisflokksins orðar það eru ótrúleg skilaboð.

Ekki það að ég sé hrifin af Icesave samningum og að ég telji að almenningur eigi að borga þessa útrás Bónusfeðga og vina þeirra.  Þjóðfélagið er í sárum - það er í molum - traust okkar á þingmönnum hefur aldrei mælst minna. Samt stígur þetta lið á stokk og hvetur þjóðina til þess að fara eftir þeirra fyrirmælum.  

Mér hugnast ekkert sem kemur úr Valhöll. Þar hafa verið brugguð launráð í áranna rás með slæmum afleiðingum fyrir þjóð vora. Þar hefur verið griðastaður einkavinavæðingarinnar og þar hafa margar skipanir verið gefnar sem hafa leitt þjóð vora til verri tíma og komið okkur í þá stöðu sem við erum í dag.

Ekki hefur heldur tekið betra við með vinstristjórninni sem nú ríkir. Sú stjórn er komin að leiðarlokum - duglítil og vonlaus. Þetta fjandans IceSave mál hefur tekið allan tíma frá stjórnvöldum - með þeim afleiðingum að almenningur situr eftir og hefur engin haft dug eða kraft til þess að aðstoða þá sem minna mega sín.

Það þykir víst bara sjálfsagt mál að það séu langar biðraðir eftir matargjöfum þegar að félagasamtök aðstoða þá sem ekki eiga lengur peninga fyrir mat. Félagalegur jöfnuður heyrir fortíðinni til - kannski hefur hann aldrei verið til.

Jafnaðarmenn hafa mestan áhuga að koma okkur á spenann hjá EBS, þeirra rök eru að allt muni fara á betri veg fyrir þjóðina ef við göngum inní hið allra heilagasta í Brussel.

Ég hvet Össur Skarphéðinsson til þess að taka lykkju á leið sína í heimsókninni hjá þeim í Þýskalandi og fara aðeins sunnar á bóginn og taka hús á Grikkjum.

Grikkirnir gætu vafalítið gefið ESB meðmæli - haldið þið það ekki?

 


mbl.is Þjóðin láti ekki kúga sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreytulegur Steingrímur

Steingrímur neitar að horfast í augu við þá staðreynd að hann er gersamlega búin að vera í þessu IceSave máli. Er þetta ekki sami maður og fagnaði frábærri niðurstöðu í IceSave málinu síðasta sumar. Hvar er hann staddur eiginlega?

Mér sýnist á myndinni að dæma að Steingrímur þyrfti að taka sér frí. Hann virkar útbrunninn. 


mbl.is Viðræður geta haldið áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Groundhog Day

Það er komið fram við þjóðina eins og við séum fífl. Það er búið að draga þjóðina á asnareyrum. Nú er nóg komið við fjölmennum á kjörstað á laugardag og segjum NEI ! við Icesave.

Bretar og Hollendingar geta farið dómstóla leiðina ef þeir þá þora því. Á mánudag getur Jóhanna og ríkisstjórnin sagt af sér. Hennar tími er komin og farin.


mbl.is Áforma ekki fleiri fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Páll Höskuldsson

Höfundur

Páll Höskuldsson
Páll Höskuldsson

Gamlir búmenn bila sízt.

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Blásið til sóknar á Austurvelli 15.júlí.2009.
  • Alþingi 15.júl.2009
  • Grótta í kvöld kyrrðinni
  • Eldur himnum ofar
  • P1080990

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband